Fim 18.nóv 2004 atli@athygli.is
Aukin umferð kallar á ný göng innan fárra ára Stjórn Spalar hefur falið framkvæmdastjóra félagsins að safna saman nauðsynlegum upplýsingum, í samvinnu við Vegagerðina, til undirbúnings viðræðum við ríkisvaldið um ný göng undir Hvalfjörð.
Þetta kom fram í máli Gísla Gíslasonar, stjórnarformanns Spalar, þegar hann flutti skýrslu stjórnar á aðalfundi félagsins á Akranesi í dag. Gísli sagði það vera ,,tilfinningu stjórnar Spalar að stækkun ganganna geti orðið brýn innan 5-6 ára.” Gera mætti ráð það mikilli aukningu umferðar á næstu árum, ekki síst auknum þungaflutningum á vegum. Ástæða væri því til að huga að næsta áfanga Hvalfjarðarganga. Hann vísaði einnig til væntanlegrar aukningar umferðar í göngunumvegna frekari uppbyggingar á Grundartanga og hugsanlegar Sundabrautar og bætti við:
,,Þeirri hugmynd hefur verið hreyft að mögulegt sé fyrir innan við tvo milljarða króna að leggja tvíbreið göng samhliða núverandi göngum að sunnanverðu, sem tengist í botni ganganna. Slík aðgerð myndi auka afkastagetu Hvalfjarðarganga og auka umferðaröryggi verulega. Ekkert liggur fyrir um með hvaða hætti megi fjármagna slíkt verkefni en nauðsynlegt er að taka upp viðræður við ríkið um málið. Ljóst er að huga þarf að ýmsum atriðum í þessu efni, svo sem landi undir gangamunna, stöðu málsins gagnvart mati á umhverfisáhrifum, jarðfræðilegum upplýsingum og að sjálfsögðu fjármögnun.”
|