Mið 24.des 2003 bergsteinn@fengur.is
HEINASTE V. Fengur ehf hefur gert verk- og útboðslýsingu og boðið út breytingar og endurbætur á b/v HEINASTE fyrir Sjólaskip hf.
Helstu breytingar og endurbætur á skipinu eru fólgnar í endurnýjun á fiskvinnslu, breytingar/stækkun á fiskmóttöku, sjókælikerfi, ískrapakerfi, nýjar ljósavél, breytingar á svartolíukerfi f. aðalvélar til að brenna þykkari svartolíu ofl.
Samið hefur verið við skipasmíðastöðina Gryfia í Szczecin, Póllandi og er skipið þegar komið til stöðvarinnar. Áætlað er að verkinu ljúki um miðjan janúar. |